Könnun

Ţjóđhátíđ í Eyjum 2008???

Auglýsing

Innskráningar kubbur

krúttípúttí

29. júlí 2008 klukkan 12:04
Fannst þetta svo krúttlegt að ég varð að setja þetta hér :D

Kisi

Ef þetta væri Embla á myndinni þá væri hún ekki að spá í hvað hún ætti að gera við peninginn heldur væri hún búin að éta hann.. Hún er nefnilega eins og lítið barn, setur allt upp í sig.. fyrir um 3 dögum gleypti hún stein sem var nú bara ansi stór þannig að ég var frekar hrædd um að hann myndi festast einhvers staðar inní henni.. en hann skilaði sér í gær.. haha..
Svo í gær fengum við Sandra alveg sjokk, því hún lá á teppi fyrir framan okkur með beinið sitt og svo allt í einu gaf hún frá sér frekar skrítið hljóð og þá hafði hluti af beininu hrokkið ofan í kok og stóð í henni.. greyjið var smástund að reyna að hósta því upp, stóð svo upp og leit á okkur með þvílíkum angistarsvip eins og til að biðja okkur um hjálp.. Við stukkum náttúrulega báðar til í algjöru pati, hvernig notar maður Heimlich á hund?? Endaði með að ég gerði smá tilraun, veit ekkert hvort að það hjálpaði en beinið kom upp eftir smástund en aumingja hundurinn var alveg eftir sig eftir þetta..

aćslkdgćaskldghćash

22. júlí 2008 klukkan 15:50

Jææææææææææja...

Nú eru bara 20 mínútur í lokun á þessum ágæta vinnudegi þar sem ekkert hefur verið að gera whatsoever.. Það er svosem fínt að vera í smá rólegheitagír svona um miðjan mánuðinn, enda tók ég helgina í þeim pakka.. Steinsofnaði fyrir allar aldir á föstudaginn enda alveg dauðþreytt einhverra hluta vegna.. Á laugardaginn var okkur Söndru boðið á landsleik í handboltanum, Ísland - Spánn sem við rústuðum.. Marit og Klara voru svo góðar að bjóða okkur með þar sem þeim áskotnuðust fjórir miðar :) Svo um kvöldið var partý hjá Kristínu Láru sem var rosa gaman en mín var nú samt komin heim með fyrra fallinu þannig að sunnudeginum var sko aldeilis ekki varið í svefn eins og oft vill gerast :)

Dró Söndru með mér í Ikea til að kaupa lak á rúmið mitt sem ég hef verið á leiðinni að gera frá því að ég keypti mér þetta rúm fyrir svonaaaaaaa rúmum 5 árum síðan. Það rifjaðist upp fyrir mér hvað mér finnst gaman í Ikea og ég missti mig pínu, endaði á því að versla fyrir þónokkra þúsundkalla og Sandra líka :S En það var allt þess virði því nú er herbergið mitt orðið rosa fínt :D Hlakka rosalega til að flytja að heiman bara svo ég geti farið og keypt allt í Ikea.. hahah.. Um kvöldið fór ég aðeins upp í Grafarvog og kíkti á litlu fjölskylduna þar, Margrét Lilja litla frænka stækkar bara og stækkar, algjör rófa, þarf að fara að skella inn eins og einni nýlegri mynd af henni hérna. Valsi sendi okkur mynd af henni um daginn þar sem hún er alveg nákvæmlega eins og Sandra þegar hún var lítil :)

Miđvikudagsglensiđ

16. júlí 2008 klukkan 16:20
...

Helgin í sveitinni

14. júlí 2008 klukkan 09:43

Skrapp um helgina í löngu tímabæra sveitaferð til að kíkja á hestana mína og svona.. Fór fljótlega eftir vinnu á föstudeginum og var komin austur um hálfátta. Móttökunefndin var eitt stykki ferfætlingur, a.k.a. Embla, sem ætlaði að vaða inn í bílinn áður en ég náði að standa upp, hún var svo glöð að sjá mig :) Fann svo gamla settið í pottinum og settist aðeins niður hjá þeim og naut þess að anda að mér ferska sveitaloftinu :P Um kvöldið komu svo frændi og hans kona í mat og var svaka stuð á bænum. Meðan skálað var í rauðvíni og svona var ákveðið að taka það með trompi daginn eftir og keyra nokkra hesta yfir á Kjóastaði og hestbakast svo þaðan og upp í bústað sem er um 6 tíma reið.

Vöknuðum svo snemma daginn eftir til að smala og ná í hesta í tveim hólfum fyrir neðan bústaðinn og enginn þorði að bakka út úr þessu þó það væri heldur dimmt yfir ;) Lögðum svo af stað frá Kjóastöðum rétt fyrir eitt í grenjandi rigningu sem varði allan daginn, og voru það fimm niðurrigndar manneskjur sem komu á áfangastað um 7 leytið. Þetta var samt allt þess virði, enda alveg hörkustuð á leiðinni :)

Fórum strax í pottinn með kaldan bjór enda er það töfralyf sem læknar allt :D Svo var matur hjá frænda og þeim en þar sem gamla fólkið var orðið ansi lúið eftir daginn varði það ekki lengi þannig ég skrapp upp í Fossnes og kíkti á hann Bjarna og fljótlega kom frænka mín með föruneyti og það var náttúrulega svaka stuð :) Þau voru á leiðinni á ball í Árnesi sem ég beilaði á þar sem fínustu fötin sem ég var með var joggingbuxur og hettupeysa og ég var ekki alveg á því að fara í því á ball, þótt það væri í sveitinni :S

Sunnudagurinn var svo rólegheitadagur eins og sunnudagar eiga að vera, og svona til að auka á kósíheitin var grenjandi rigning og rok úti.. keyrði svo heim í gærkvöldi til að mæta í vinnuna í dag þó það hafi verið ansi freistandi að hringja sig inn "veðurteppta" eða eitthvað og vera aðeins lengur í sveitinni... en það kemur víst helgi eftir þessa helgi ;) Svo eru bara 18 dagar í Þjóðhátíð :D

Hvíl í friđi Fengur minn...

07. júlí 2008 klukkan 23:12

Það kom að því á mánudaginn fyrir viku síðan að Fengurinn minn fór á betri stað og losnaði undan þjáningum sínum.. Hann var yndislegur hestur, alveg einstakur. Við fengum hann upphaflega þegar hann var 10-11 vetra frá manni sem seldi hann bara vegna þess að hann var að hætta í hestamennsku heilsunnar vegna. Hann hefur verið einn mest notaðasti hesturinn okkar síðan enda stórskemmtilegur, mjög skapmikill en traustur og góður. Við Fengur höfum átt margar góðar stundir saman, man sérstaklega eftir sleppiferðum 2005 og 2007.. set hér inn myndir til minningar um hann, frá sleppiferðinni 2005 þegar við tókum saman þátt í smá sprelli, kappreiðum og einhverju í Hólaskógi...


Fengur 1Fengur 2Fengur 3Fengur 4

Life...

24. júní 2008 klukkan 08:55
Life is short


Speki dagsins í boði Rakelar...

Ætla að byrja á því að óska Marit til hamingju með afmælið, hún er 22 ára í dag þessi elska :) Congratz ;*

Helgin var geggjuð, enda er maður svo áhrifagjarn að um leið og það kemur gott veður þá er maður í sólskinsskapi :P Við stelpurnar fórum í sumarbústað á föstudaginn eftir vinnu og vorum fram eftir degi á laugardegi að leika okkur á trampólíni, sprauta úr vatnsbyssu og alls konar svona skemmtilegt :) Þegar við komum í bæinn fórum við svo niður í bæ og settumst aðeins í Alþingisgarðinn og sóluðum okkur aðeins meira.. Svo tók ég því nú bara rólega um kvöldið og vaknaði svo með Emblu á sunnudaginn og við fórum út í sólbað saman :) Önnur okkar hafði það þó aðeins betra í sólinni en hin sem var að kafna úr hita..

Í gær kom ég svo heim úr vinnunni og fékk aldeilis hreyfingu dagsins þegar Embla og Kári bróðir hennar fengu aðeins að hittast og stungu svo af í hita leiksins, þau gleyma sér sko alveg þegar þau hittast. Við vorum held ég 6 að leita að þeim um hverfið en þau fundust á endanum í dalnum fyrir neðan húsið í alveg brjáluðum leik :)
Svo ég tali nú aðeins meira um Emblu þá er hún að fara að taka þátt í sinni fyrstu sýningu á laugardaginn, það er sumarsýning HRFÍ og bað eigandi mömmu hennar okkur um að skrá hana. 2 bræður hennar voru á sýningu um daginn og gekk bara ljómandi vel, og við erum mjög spennt að sjá hvernig þetta fer á laugardaginn.. Ef einhverjum langar að koma og sjá þá er þetta í reiðhöllinni í Víðidal og hennar flokkur er kl. 9:44 á laugardagsmorgninum :)

Embla

Sleppiferđin

18. júní 2008 klukkan 16:20
Í gærkvöldi kom ég heim úr hinni árlegu sleppiferð á hestunum, þar sem við hestbökumst úr bænum og endum einhverjum dögum seinna í Fossnesi í Gnúpverjahreppnum þar sem hestarnir eyða sumri og hausti.
Ferðasagan er hér í stuttu máli, aðallega mér til gamans :)

Laugardagur:
Lögðum af stað um þrjúleytið frá Sörlaskeiði í Hafnarfirði, þar sem við erum þennan dag svo nálægt byggð þurftum við að teyma en gátum ekki verið með lausa hesta í rekstri. Ég var því með þrjá gæðinga, Ljúf, Glæsi og Frosta.. Frosti fékk þó aðallega að hlaupa með bara þar sem hann var nýkominn úr sveitinni og því í engu formi. Hann gegndi þó því veigamikla hlutverki að vera á milli Ljúfs og Glæsis mestalla leiðina því Glæsir var alltaf að bíta Ljúf og Ljúfur varð svo pirraður að hann ætlaði að stinga hann af, sem gekk því miður illa þar sem ég sat á Ljúf og teymdi Glæsi.
Ljúf tókst svo á einum tímapunkti að hoppa upp að framan og lenda ofan á ristinni á mér í einu stoppinu, snillingurinn hitti einhvern veginn fyrir ofan stáltánna þannig að ristin á mér er fallega blá og marin núna. Enduðum þennan dag svo í Dal og voru hinir 6 hestarnir okkar keyrðir þangað um kvöldið.

Sunnudagur:
Þennan dag riðum við sem leið lá upp á Nesjavelli, það var nú frekar grýttur jarðvegur sem við fórum yfir þannig að þetta var nú ekki besti dagurinn en góður samt sem áður. Fengum líka gott veður þennan dag eins og alla hina :) Gistum í Nesbúð sem er voða sveitó gistiheimili og fengum þar silung og svona í kvöldmat eftir að við höfðum slakað aðeins á með bjórinn í heita pottinum. Embla fékk að vera með okkur þar og við vorum roomies :) Komst að því að hún hreyfir sig ótrúlega mikið í svefni, ég vaknaði ótrúlega oft við að hún var að bylta sér eitthvað og hún vaknaði líka í hvert skipti sem ég hreyfði mig, enda ekki vön að verða vör við neina hreyfingu í "herberginu sínu" heima :)

Mánudagur:
Þessi dagur var mjög skemmtilegur, fórum hina víðfrægu "drift" sem ég var búin að heyra svo mikið um og stóð hún alveg undir væntingum, mjúkar moldargötur svo augað eygði.. Prófaði nýjasta hestinn okkar, hann Ljóma (eða Aron eins og hann hét þegar við fengum hann, gömlu hjónunum fannst eitthvað nauðsynlegt að skipta um nafn á honum). Það fór nú ekki betur en svo að hann trylltist þegar reksturinn fór af stað í byrjun og henti mér af og steig svo næstum ofan á mig, strauk mig sko með afturlöppinni og náði að stíga á jakkann minn. Mamma ætlaði eitthvað að fara að vernda barnið sitt og láta mig skipta um hest en ég hélt nú ekki, fór aftur á bak og kláraði áfangann á honum eins og ekkert væri þannig að við enduðum sátt Svalur Valur fór nú að hlæja í lok áfangans og sagði að hann ætti eitthvað í vandræðum með kvenmenn greyjið hesturinn því ég er þriðja konan sem hann lætur svona við eftir að við fengum hann en svo er hann alltaf ljúfur sem lamb þegar Valur er á honum. Enduðum þennan dag með hestana á Spóastöðum og gistum á Laugarvatni, svo var ég að horfa út um kvöldið og pæla voða mikið í hvaða vatn þetta væri sem ég sæi út um gluggann.. áttaði mig allt í einu.. döööööö... smá ljóskumóment.

Þriðjudagur:
Þessi dagur var nú eigilega langskemmtilegastur. Ég, mamma, Svandís og Marín Rún frænkur og Bergþóra byrjuðum á því að skella okkur berbakt að smala túnið sem hestarnir voru á og það var algjör snilld :) Svo var rosa gaman að finna þegar við fórum að nálgast áfangastað að hestarnir vissu alveg hvert þeir voru komnir og hvert þeir voru að fara.. Var á Ljúf síðasta spottann og hann var alveg að fríka út af spenningi að komast í grænan haga heima í sveitinni, enda veit hann fátt betra en að éta á sig gat held ég ;) Fórum rosa fallega leið meðfram bökkum Stóru-Laxár og svo í gegnum Skarðsland áður en við komum upp á sveitavegina í sveitinni.
Enduðum svo upp í bústað þar sem hestarnir voru sorteraðir aðeins og fengu svo að fara út í haga meðan við mannfólkið fengum okkur einn kaldan og slökuðum aðeins á. Mér tókst einhvern veginn að brenna í framan, alltaf jafn sniðug í því, þannig ég er eldrauð í framan í dag.. :S En svo kom litla systir og kæró og sóttu þreyttu, skítugu mig í sveitina svo ég kæmist nú í vinnuna í dag.. :)

Fjórir vinir
Feykir, Tindur, Glæsir og Ljúfur

Sumariđ er tíminnnnnnnn

11. júní 2008 klukkan 09:34
Ég er alveg að fíla það að það sé komið sumar.. Vinnan komin á fullt og bráðum á maður fullt af peningum, gaman gaman :) Strax búin að fara á eitt vinnudjamm með útibúinu mínu sem var ótrúlega gaman. Svo var helgin tekin með trompi, mér var boðið í mat til Hörpu og Hansa á föstudaginn, þar var á boðstólum mohito í fordrykk, hörpudiskur og hvítvín, lamb, naut og hrefna ásamt rauðvíni í aðalrétt og svo soufflé og kampavín í eftirrétt.. algjör snilld :)

Á laugardaginn hittumst við Húsó stelpurnar hjá Marit og skelltum okkur á Húsó reunion á Ölveri, rosa gaman að sjá krakkana aftur sem maður hefur ekki séð nánast síðan í grunnskóla.. Svo ákváðum við stelpurnar að hafa svona tjill dag heima hjá mér á sunnudeginum, grilluðum og borðuðum tonn af nammi og kíktum í pottinn og svona.

Á morgun er svo stefnan tekin á sjálfan James Blunt í Laugardalshöllinni með henni Hörpu, því tengdó hennar voru svo yndisleg að gefa henni tvo miða og hún svo yndisleg að bjóða mér með :D Það verður örugglega geggjað gaman, við ætlum sko að fara fyrst og fá okkur að borða og eitthvað svo þetta verður snilldar kvöld.

Á laugardaginn verður svo lagt af stað í hina árlegu sleppiferð með familíunni, þ.e. mömmu & co og bróður hennar mömmu og hans familíu, börnum og líklega barnabörnum.. Það verður semsagt lagt af stað uppúr hádegi og farið upp í Mosfellsdal og svo verður riðið áfram sem leið liggur þangað til við endum í Fossnesi á þriðjudagskvöldi með allan hestahópinn..
Því miður verðum við hestfærri en við hefðum vonað því að hann Fengur okkar varð svo fótaveikur í vetur að hann stendur varla undir sjálfum sér lengur greyjið.. hann er því kominn upp í sveit til þess að eyða síðustu dögunum áður en hann verður felldur :(

Fengurinn minn
Fengurinn minn

Mamma og þau fóru í svaka hestastúss í gær, fóru með Feng austur og Tind, Þráð, Glóblesa, Ljóma, Feyki og Val upp í Mosfellsdal af því að þau verða ekki á baki fyrsta daginn og verða því bara 3 af okkar hestum í húsinu fram að helgi sem ég verð með fyrsta daginn í ferðinni, þ.e. Ljúfur, Frosti og Glæsir :) gaman gaman ;)

Ársfagnađur Glitnis

13. apríl 2008 klukkan 17:47
Í gær var haldin ársfagnaður Glitnis sem var nú bara mesta skemmtun sem ég hef upplifað lengi lengi. Partýið byrjaði heima hjá Hörpu og Ingó þar sem við hittumst til að vera samferða niður á Apótekið þar sem fyrirpartý var fyrir alla sem vinna í Lækjargötunni, þ.e.a.s. Söluver, þjónustuver og útibú 513 (þar sem ég vinn alltaf á sumrin). Þar var allt flæðandi í ótakmörkuðu áfengi og allir voða hressir Ullandi

Um klukkan 19:30 fóru rútur með liðið upp í Laugardalshöll þar sem aðalpartýið var. Þegar þangað var mætt voru á planinu nokkrir gamlir Kadiljákar með hvellandi pústi og dönsurum inní :P Inni var svo algjör karnival stemmning - fólk labbandi um að gefa poppkorn, candy floss og blöðrur svo ekki sé talað um allt áfengið Glottandi

Þrír matsölustaðir voru í salnum, þar af tveir með lifandi tónlist, og var í boði rif, hamborgarar, franskar og fleira girnilegt :)
All in all, þá var þetta hið fullkomna síðasta djamm fyrir próf Svalur Einn af hápunktum kvöldins var klárlega þegar hinn frægi SöluBjössi var endurvakinn og myrtur nokkrum mínútum seinna af dularfullu manneskjunni með tannstöngulinn... hmm... (smá vinnustaðahúmor)

SöluBjössi beeeeeeer candyfloss og blöðrur! Mrs. Jack Daniels Candy flossssssss Harpgó Hann Marie

Fleiri myndir er að finna á Feisbúkkinu hennar Hörpu Svalur

Miđvikudagsblađur

27. febrúar 2008 klukkan 10:25

Nú fer að líða að þessum klassísku 2 vikum eða svo á önninni að allir kennarar átti sig á því að þeir eigi eftir að smella svosem eins og einu skyndiprófi eða verkefni á liðið og ákveða að gera það allir á sama tíma, verkefnaskil á morgun, próf á föstudaginn, fyrirlestur á laugardaginn, verkefnaskil á sunnudaginn, próf á miðvikudaginn og svo mætti áfram telja.. þetta verður gaman :D

Á föstudaginn 15.febrúar komu Mágusartíðindi loksins út og var útgáfupartýið vel  heppnað og almenn ánægja held ég bara með blaðið :) Við hittumst í smá fordrykk stelpurnar í ritnefndinni og fórum svo út að borða á Domo þar sem við fengum mjöööög spes mat, m.a. Kengúru! Skoppuðum svo yfir á Rex þar sem útgáfupartýið fór fram og var fyrst svona VIP partý kl. 20 og svo komu allir kl. 22 sem ekki voru nógu merkilegir til að vera VIP ;) Mikið stuð...

Á föstudaginn var hinn árlegi MÁGUS-orator dagur þar sem viðskiptafræðinemarnir í Mágusi etja kappi við lögfræðinema Orators í hinum ýmsu greinum, s.s. skák, spurningakeppni, handbolta, fótbolta, körfubolta, ræðukeppni og bjórþambi.. Auðvitað lét ég mig ekki vanta á þennan viðburð frekar en aðra og tók þátt í fótboltanum, handboltanum og körfunni. Það vildi nú ekki betur en svo að okkur Mágusarmeðlimum tókst að tapa deginum 11-4 en við stelpurnar unnum handboltann sem ég hafði hlakkað mest til að taka þátt í :) Var búin að gleyma hversu mikið ég elska að spila handbolta.. Tókst meira að segja að skora nokkur mörk og svona :D
Um kvöldið var svo ræðukeppni og bjórþamb og svona í Valsheimilinu þar sem keppnin hafði farið fram um daginn líka. Um klukkan 10 fór ég yfir á Kringlukránna þar sem var í gangi uppskeruhátíð hjá vinnunni. Fékk að vita þegar þangað var komið að ég hefði unnið verðlaun fyrir að vera söluhæst einhvern mánuðinn, en hef ekki ennþá fengið verðlaunin mín af því að ég mætti svo seint þangað :P

Annars er lítið af frétta, litla frænkan mín braggast vel, hún kom í heimsókn um daginn og fékk Embla að sjá hana í fyrsta sinn, svona úr fjarlægð ;) Þegar skvísan var orðin svoldið svöng kom smá grátur og Embla vissi bara ekki hvaðan á sig stóð veðrið, hljóp alveg í hringi inní eldhúsi og var ekki að fatta hvaðan þetta hljóð kom, ógeðslega krúttulegt :)

Best að fara að fylgjast betur með í þessum fyrsta lögfræðitíma sem ég mæti í á önninni (er nefnilega í 2 fögum á sama tíma og þar sem hitt er skyldufag en lögfræðin valfag þá ákvað ég að taka hitt fagið fram yfir og mæta í þá tíma, að mestu leyti alla vega)

Adios!

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Ég um mig frá mér til mín

Halló! Ég er 22 ára vitleysingur sem svara nafninu Rakel... Hér ćtla ég mér ađ deila međ ţeim sem hafa áhuga smá fréttum og almennum hugleiđingum mínum í lífinu. Enjoy! ;)

Atburđarteljari

Leit

Leikur dagsins